Þorri byrjaður....

.... með þvílíkri dandala blíðu að það hálfa væri nóg, vonandi verður hann svona blíður áfram blessaður svo maður geti notað hann til útiveru, það viðraði vel til þess í dag þó ég kysi nú frekar að dansa við ryksuguna inni enda svitnaði ég nú jafnvel meira við það heldur en ég geri á göngu þannig að ég hef fengið fína brennslu í dag. Wink

Nú er fyrsta vikan búin í vinnunni og ég bara þokkaleg í herðunum, heldur verri í handleggjunum en það hlýtur að æfast með tímanum.

Svo er það fjörðurinn fagri á morgun, og þar verður þorrinn blótaður með góðum mat og skemmtilegu fólki, hlakka mikið til. Smile

Verslaði í dag handa bóndanum svo hann geti gætt sér á súrum, reyktum og söltuðum mat á meðan ég er í burtu, vona samt að hann verði ekki veikur af öllum þessum súrsölrey mat, en hann fékk nú líka pytlu með góðu og sterku innihaldi til að þetta allt renni nú betur niður. Heart


Fyrsti vinnudagurinn

Jæja þá er hversdagurinn tekinn við, og er það bara ágætt að allt sé að fara í fastar skorður aftur.

Ég verð að vinna frá 8-12 og vona að ég fái að hafa það svoleiðis áfram því mér finnst best að vinna á morgnana, þá nýtist dagurinn mikið betur.

Fékk svo að vita að ekki verður ráðið í hina vinnuna sem ég átti von á að fá, allavega lá mikið á að ég svaraði fyrir jól hvort ég vildi hana eða ekki, en svona er þetta bara og þá verð ég í fríi eftir hádegi sem er bara mjög fínt, þá get ég notað þann tíma til að ganga og halda áfram í átakinu mínu.

Ég slakað smá á eftir Kristnesmætinguna en er að komast aftur á rétta braut og nú er lokaátakið í þessari eilífu baráttu.

Ég fór í skemmtilegt afmæli á laugardagskvöldið, flottar veitingar og allt mjög fínt eins og Gurrý er von og vísa, skemmti mér konunglega og dansaði meira að segja helling Wink og nú var það ekki eins erfitt og þegar ég var 30 kg. þyngri. Heart


Afmæli í dag

Sonurinn er 28 ára í dag, vá hvað tíminn líður fljótt, mér finnst ekki langt síðan hann var bara smá patti,

img.jpg hann bakaði svo skúffuköku í dag til að hafa með sér á næturvaktina handa vinnufélögunum. Nú er ég búin að fá svar við vinnunni fer sem sagt að vinna á mánudaginn, hálfan daginn aftur í Héraðsskjalasafninu, hef ekkert heyrt meira um hina vinnuna.

Svo nú er sælan á enda, mikið gæti ég hugsað mér að vera bara heima það er sko alveg nóg að gera þar mest allan daginn og svo gæti ég gert bara eitthvað skemmtilegt hinn hlutann Wink út að ganga, í kaffi til Sillu og fleira svoleiðis. 


Góð ferð norður

Já ég var rosalega ánægð með ferðina norður, gat glatt Friðrik lækni með góðum léttingi og það er nú alltaf gott að geta glatt aðra Wink ég kom sem sagt mjög vel út á vigtinni og því sem ég er að vinna í núna með sjálfa mig. Og ekki skemmdi fyrir að hitta fjórar fjallhressar konur sem allar voru í góðum málum. Við fórum svo þrjár saman og fengum okkur smá kaffi og hollustu á Bláu könnunni og áttum gott spjall. 

Nú er næsta mæting í apríl eða maí svo nú er að halda ótrauð áfram svo ég geti nú glatt hann líka þá með góðum léttingi, en svo fer þetta að taka enda bara 3 fundir þá eftir og mikið á ég eftir að sakna þess að koma ekki hitta þau öll, gæti bara grátið. Frown Við reyndum mikið að sníkja auka ár eða fá td. að koma í eina viku en höfðum ekki árangur sem erfiði þetta skemmtilega tímabil verður sem sagt á enda eftir ár. En vonandi verðum við hópurinn eitthvað í sambandi áfram það væri gaman. 

Ég var líka svo heppin að finna án mikillar fyrirhafnar og með hjálp frá frábærri afgreiðslukonu í Centro Glerártorgi og annari í Rexín, fjóra efrihluta og 1 buxur og nú get ég (Hrönn systir) svo valið úr fyrir þorrablótið og afmælin sem framundan eru, ekkert of flott samt svo ég get líka notað það spari og sumt í vinnunni og allar þessar flíkur kostuðu ekki nema um 30 þús. og finnst mér það vel sloppið á þessum síðustu og verstu Wink

Bíllinn fékk smá viðgerð og við höfðum það aldeilis gott í íbúðinni þannig að þetta var bara fínn sólarhringur (rúmlega)


Kristnes hér kem ég....

Eins og ég sagði um daginn þá er komið að því að mæta norður á Kristnes í eftirlit og kanna í hvaða þyngdarflokki maður er í Wink um þessar mundir. Hlakka mikið til að hitta liðið, eins og alltaf Joyful og ég vona að allir mæti eða sem flestir. Þetta hefur gengið nokkuð vel hjá mér síðan ég var þar síðast í ágúst og gat engan árangur sýnt því miður, fór heim með skottið á milli lappana, en nú er annað upp á tengingnum sem betur fer, þannig að þetta gæti ekki verið betra.

Svo er stefnt á það að kíkja í búðir og fjárfesta í sparidressi því 3 næstu helgar eru fráteknar í: fimmtugsafmæli, þorrablót og aftur fimmtugsafmæli, bara fjör og aftur fjör, át og aftur át, því er eins gott að heimsóknin á Kristnes er á undan þessu öllu svo ég er safe næstu 4 mánuði eða fram í maí.Heart


Yndislegt veður

Í dag fór ég loksins á góða göngu í tæpan klukkutíma, og þetta er bara í annað sinn á árinu, ekki nógu gott hjá mér en stendur til bóta.

Annars eru bara rólegheit hér á þessu heimili, kláraði að ganga frá jólaskrautinu í gær, og þreif.        Og skipti svo um eldhúsgardínurnar í dag. 

Var að enda við að borða þorsk í "jukki" umm rosalega gott, tók bara allt sem ég fann í ískápnum sem hentaði og vola ljúffengur fiskipottréttur með ristuðu brauði.

 

 


Loksins, loksins ;)

  Jæja loksins tók ég mér tak og er búin að vera eins og engill undanfarna daga og komin aftur á sama stað og ég var að monta mig með 30 kg. Já jólin spilltu svolítið fyrir, en þó ekki mikið og svo er bara að taka sér tak og halda ótrauð áfram.

Enda ekki seinna vænna því það er mæting í eftirlit á Kristnesi 13. jan. Við erum búin að fá íbúð 12. svo við getum farið þetta í rólegheitum í stað þess að strekkja sig eldsnemma um morguninn 13. þoli ekki að keyra í svona færð undir einhverri pressu svo þetta verður bara fínt.

Ég er enn atvinnulaus en það stendur nú til bóta, byrja sennilega að vinna hálfan daginn 18. jan og svo allan daginn fljótlega, bara gott mál.  Ekkert auka frí eins og ég bjóst við, jú auðvitað er ég búin að vera í góðu fríi frá því 22. desember svo þetta verður heill mánuður hvað er ég að kvarta JoyfulHeart







Gleðilegt nýtt ár !

  Og takk fyrir það gamla.

Ég átti þvílíkt yndislegan dag í dag á Vopnafirði.

Kom þangað eftir hádegi í gær og við litla systir vorum að fram undir sex að undirbúa skírn hjá systurdóttur minni henni Sólrunu og kærasta hennar sem eiga 3 vikna gamlan son, síðan var borðað hjá "litla" bróður og allt svona hefðbundið, brenna og flugeldar, spilað til kl. 2 og þá farið að sofa svo allir yrðu upplagðir í dag.

Í morgun var lögð síðast hönd á undirbúninginn og svo í kirkju 01,30.

Foreldrar mættir með óskírðan og hin tvö, eitthvað pukur á þeim fram í forstofu og við skildum ekkert í hvað tafi þau, en allt í einu hljómaði brúðarmarsinn og allir gripu andann á loft og svo birtust þau og gengu inn kirkjugólfið með okkur öll gapandi af undrun, ég hefði viljað vera fluga á vegg og sjá öll svipbrigðin já og tárin sem spruttu fram við þetta.

Þau voru svo gift og barnið skírt Baldur Geir í höfuðið á öfunum tveim sem einnig voru skírnarvottar og alveg óvænt settir í svaramannastöðu líka og ég held þeir séu varla búnir að átta sig á þessu ennþá.

En vel tókst þeim hjúunum að halda þessu leyndu því enginn vissi neitt nema presturinn og svo börnin þeirra sem fengu að vita þetta seint í gærkvöldi svo þau myndu nú ekki kjafta frá, því þau voru hringaberar, 9 og 5 ára.

Já þetta var alveg yndislegt og svo fallegur dagur, bjart og stillt og snjór.

Þetta var góð byrjun á nýju ári, vonandi á allt árið eftir að vera í þessum dúr, eintóm hamingja og kærleikur og gleði.

Ps. ég má til með að bæta því við í restina að ég á já og Óli líka 38 ára brúðkaupsamæli í dag og svo átti Sigurveig amma afmæli þennan dag og einnig á Tóta mágkona afmæli þannig að þetta er bara heilladagur fyrir okkur öll. Heart






Ömmu prinsinn kominn í heimsókn...

... og þá verður nóg að gera hjá ömmu gömlu, enda tók ég mér bara frí til að vera heima og stjana við hann.

Hann átti 5 jólapakka hér svo það var handagangur þegar hann kom og opnaði pakkana. Hann fékk Man Unt. könnu frá Hrönn frænku og co og var rosalega ánægður með það, takk Hrönn Kissing

Næst var það bolur og stuttbuxur Man Unt. nr. 11 Giggs og þvílík gleði vá takk til langömmu Boggu og langafa Róberts Kissing 

Lego frá Siffu ömmu og Óla afa, það var bara aukapakki því aðalpakkinn var fram í þvottahúsi, svo stór að honum var ekki pakkað inn, og snjóbretti var það og síðast en ekki síst brettaskór frá pabba InLove mikil gleði og nú verður amma gamla að fara út á morgun með prinsinn til að prufukeyra nýja brettið því pabbinn er á næturvakt og þarf að sofa frameftir á morgun svo ég veit hvað bíður mín á morgun Wink bara gaman að koma út og klofa snjóinn Heart


Þriðji í jólum.

Hér hefur gamla settið ekki farið úr náttfötunum  í dag. Til stóð að sækja ömmustrákinn á Vopnafjörð í morgun en það var svo leiðinlegt veður að við hættum við, ætlum að gera aðra tilraun á morgun og vonandi tekst það betur.

Dagurinn hefur liðið við lestur  , sjónvarpsgláp, dottað ofan í bókina, að borða, ekkert ofát samt eins og undanfarnir dagar hafa endað með, enda var lítið sofið í nótt   vegna ónota í maga og hálsi, bakflæðið komið á fullt aftur eftir 3ja ára fjarveru. Svo nú eru það litlir skammtar og mikið vatn. Heart


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband